Samskiptasáttmáli
Við sem vinnum á skrifstofu Alþingis höfum gert með okkur samskiptasáttmála. Tilgangurinn er að stuðla að skýrum, jákvæðum og hlýjum samskiptum milli allra, óháð því hvaða störfum við gegnum á skrifstofunni.
- Umhyggja Við styðjum hvert annað og sýnum nærgætni.
- Liðsheild Við vinnum sem heild og treystum fagþekkingu hvers annars.
- Heiðarleiki Við erum heiðarleg í störfum okkar og samskiptum.
- Jákvæðni Við erum jákvæð í viðmóti og hrósum fyrir það sem vel er gert.
- Mörk Við virðum mörk hvers annars og ólík sjónarmið.